Fara í efni

Íþróttakennara vantar í Varmahlíðarskóla

11.06.2014

Varmahlíðarskóli óskar eftir að ráða íþróttakennara

Um er að ræða 100% starfshlutfall frá 15. ágúst til 1. desember 2014.
Ráðningarform: Tímabundin ráðning, vegna fæðingarorlofs.

Hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Faglegur metnaður.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 6. júlí 2014.

Sótt er um störfin á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (störf í boði) eða í íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Á. Freyja Friðbjarnardóttir, skólastjóri, í síma 455-6023 eða með því að senda fyrirspurn á freyja@varmahlidarskoli.is og Hrefna G. Björnsdóttir, mannauðsstjóri, í síma 455-6065 eða hrefnag@skagafjordur.is.

 

Sækja um