Fara í efni

Íþróttadagur Árskóla heppnaðist með eindæmum vel

18.02.2026

Mikil gleði og frábær stemning einkenndi skólastarfið í Árskóla í gær þegar árlegur íþróttadagur skólans fór fram. Nemendur sem og starfsfólk komu saman og tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá sem bauð upp á leiki, hreyfingu og auðvitað smá keppni.

Á meðal dagskrárliða voru meðal annars dans, skjaldbökuklukka, gryfjubolti, sjúkrahúsleikur, fánaleikur og reiptog. Auk þess var haldin skemmtileg bandíkeppni milli starfsfólks og nemenda í 5. bekk.

Hápunktur dagsins var þó án efa körfuboltaleikur 10. bekkinga gegn starfsfólki skólans. Leikurinn var æsispennandi frá upphafi til enda og hélt áhorfendum vel við efnið. Að lokum stóð 10. bekkur uppi sem sigurvegari með markatöluna 18–12.

Óhætt er að segja að dagurinn heppnaðist einstaklega vel og öll fóru heim með bros á vör eftir skemmtilegan dag.