Fara í efni

Ísbjörninn kominn með varanlegan samastað

13.06.2014
mynd Byggðasafnið

Ísbjörninn sem hefur verið í Minjahúsinu á Sauðárkróki hefur nú fengið fastan samastað í húsinu. Björninn var felldur við Þverárfjallsveg sumarið 2008 og hefur Byggðasafnið fengið dýrið að láni frá Náttúrustofnun Íslands næstu tvö sumur. Hvítabirnir, sem eru stærstu rándýr jarðar, hafa oft hrakist til Íslands gegnum aldirnar á rekís. Þessi björn er sá fyrsti á þessari öld sem vitað er um.

Minjahúsið er opið alla daga kl 12-19