Fara í efni

Staðfesting á sameiningu Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar í eitt sveitarfélag

06.04.2022

Auglýsing um staðfestingu Innviðaráðuneytisins á sameiningu Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar í eitt sveitarfélag hefur verið birt í B-deild Stjórnartíðinda. Þar er m.a. tilkynnt að kosið verði um níu fulltrúa í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags í sveitarstjórnarkosningunum þann 14. maí nk. Nýkjörin sveitarstjórn mun taka við stjórn sameinaða sveitarfélagsins þann 29. maí 2022 og á sama tíma tekur sameiningin gildi.

Sjá auglýsingu hér að neðan: