Fara í efni

Innritun barna í leikskóla Skagafjarðar

17.04.2026

Fjölskyldusvið Skagafjarðar vekur athygli á innritun barna í leikskóla Skagafjarðar. Samkvæmt reglum um innritun barna í leikskóla Skagafjarðar er að jafnaði miðað við að leikskóladvöl hefjist í upphafi hefðbundins skólaárs en einnig er hægt að innrita börn á öðrum tímum ef aðstæður leyfa.

Þeir foreldrar sem óska eftir dvöl fyrir börn sín í leikskólum Skagafjarðar frá hausti 2026 þurfa að sækja um það í Íbúagátt Skagafjarðar fyrir 15. maí nk. Ekki þarf að endurnýja umsóknir ef umsókn hefur nú þegar verið send inn.

Ef umsókn berst eftir 15. maí getur afgreiðsla umsóknar frestast.