Innritun árgangs 2020 í grunnskóla í Skagafirði
13.04.2026
Innritun barna sem hefja skólagöngu í grunnskólum Skagafjarðar næstkomandi haust er hafin. Innritun fer fram í gegnum vefgáttina Ísland.is. Foreldrar barna fædd árið 2020 eru hvött til að innrita börn sín sem fyrst eða í síðasta lagi 15. maí nk.
Í Skagafirði eins og í öðrum sveitarfélögum eru ákveðin skólahverfi. Börn sækja skóla innan sinna skólahverfa og skipulag skólaaksturs tekur mið af þeim.
Skólahverfin í Skagafirði eru skilgreind á eftirfarandi hátt:
Grunnskólinn austan Vatna:
- Vegamót sunnan Ásgeirsbrekku norður að mörkum Skagafjarðar og Fjallabyggðar.
Varmahlíðarskóli:
- Frá Birkihlíð
- Frá vegamótum sunnan við Ásgeirsbrekku að mörkum Skagafjarðar og Eyjafjarðar
- Byggð sunnan vegamóta þjóðvegar 1 og Skagafjarðarvegar, þ.m.t. Efribyggðarvegur, Dalspláss, Steinsstaðahverfi, Vesturdalur og Svartárdalur
- Frá mörkum Skagafjarðar og Húnabyggðar
Árskóli:
- Frá Gili
- Vegamót sunnan Ásgeirsbrekku vestur að Sauðárkróki
- Skagi frá mörkum Skagafjarðar og Skagabyggðar
- Reykjaströnd
Heimilt er að sækja um undanþágu fyrir skólasókn í öðru skólahverfi og um það gilda sérstakar reglur sem finna má hér á heimasíðu Skagafjarðar.