Fara í efni

Ingvi Hrannar hlýtur hvatningarverðlaunin

14.11.2020
Ingvi Hrannar Ómarsson. Aðsend mynd.

Í gær var tilkynnt um verðlaunahafa Íslensku menntaverðlaunanna árið 2020. Verðlaun eru veitt í þremur aðalflokkum auk hvatningarverðlauna. Fjölmargar tilnefningar bárust í öllum flokkum en þeir eru:

  • Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
  • Framúrskarandi kennari
  • Framúrskarandi þróunarverkefni
  • Hvatningarverðlaun

Tilnefningar í fyrstu þremur flokkunum eru kynntar fyrirfram en hvatningarverðlaunin eru kynnt við sjálfa athöfnina að Bessastöðum.

Að þessu sinni hlaut Ingvi Hrannar Ómarsson hvatningarverðlaunin. Ingvi Hrannar er orðinn vel kunnur í íslensku skólasamfélagi fyrir frumkvöðlastarf í nýjum og breyttum kennsluháttum sem m.a. miða að því að nýta nýjustu upplýsingatækni í öllu skólastarfi. Hann er einnig stofnandi Utís hópsins, sem er lærdómssamfélag brautryðjenda í kennsluháttum. Ingvi Hrannar hefur verið ötull við að tileinka að sér nýja þekkingu og yfirfæra hana og samfélagslegar breytingar henni samfara á íslenskt skólastarf. Skólastarf í Skagafirði hefur notið hugmynda og starfskrafta Ingva Hrannars í ríkum mæli, þar sem hann starfar sem kennsluráðgjafi hjá sveitarfélaginu. Hann hefur verið óþreytandi við að innleiða nýjar hugmyndir og hefur átt stóran þátt í að breyta kennsluháttum og viðhorfum til skólastarfs bæði hér heima sem og á landsvísu.

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar Ingva Hrannari innilega til hamingju með þessi mikilvægu verðlaun og hvetur hann til enn frekari dáða á vettvangi nýsköpunar í skólastarfi til heilla fyrir nemendur í Skagafirði og landinu öllu.