Fara í efni

Íbúafundur um samfélagsleg áhrif virkjanakosta í Skagafirði

26.01.2016
Kvöldroði í Skagafirði

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands býður íbúum í Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi til opins íbúafundar til að ræða samfélagsleg áhrif virkjanakosta í Skagafirði.

Til fundarins boðar faghópur III, sem meta á samfélagsleg áhrif virkjanakosta í þriðja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar (sjá www.ramma.is). Fundurinn verður haldinn á Kaffi Krók á Sauðárkróki laugardaginn 30. janúar kl. 13:00-16:00 og er opinn öllum íbúum sveitarfélagsins á meðan húsrúm leyfir. Þátttakendum verður skipt í minni hópa til að ræða áhrif fyrirhugaðra virkjana á samfélagið.

Umsjón fundarins er í höndum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Boðið verður upp á veitingar.

Starfsfólk Félagsvísindastofnunar mun hafa samband við íbúa í sveitarfélaginu, en einnig er hægt að skrá sig til þátttöku með því að smella hér.