Fara í efni

Íbúafundur um fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2023-2026

29.11.2022

Fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árin 2023-2026 verður kynnt á rafrænum íbúafundi fimmtudaginn 1. desember kl. 20:30.

Um þessar mundir er unnið að gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins sem lögð var fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn 16. nóvember sl. og er síðari umræða á dagskrá 14. desember nk.

Á fundinum verður sagt frá starfsemi sveitarfélagsins og stærstu verkefnum næstu ára. Opið verður fyrir spurningar og verða sveitarstjóri og sveitarstjórnarfulltrúar til svara.

Um er að ræða rafrænan íbúafund sem haldinn verður á Teams.

Hér má nálgast hlekk á fundinn: https://bit.ly/3EMmQ7y

Öll hjartanlega velkomin!