Fara í efni

Í tilefni fréttar á vef Landsnets í gær

18.12.2019

Sveitarfélagið Skagafjörður stendur við fyrri yfirlýsingu um að ekkert stóð í vegi fyrir því að Landsnet gæti hafið framkvæmdir við Sauðárkrókslínu 2 í kjölfar samþykktar sveitarstjórnar á aðalskipulagi 2009-2021, þann 17. desember 2009 og sem hlaut staðfestingu umhverfisráðherra 25. maí 2012, þar sem línan hafði verið sett inn. Enn fremur að ekkert stóð í vegi fyrir því að fyrirtækið gæti strax vorið 2018 hafið framkvæmdir við þann hluta Sauðárkrókslínu 2 sem þegar var inni á aðalskipulagi, í samræmi við það sem Landsnet segir að hafi verið áætlaður upphafstími framkvæmda, á meðan unnið væri að breytingum á aðalskipulagi vegna áforma um breytta strengleið hins hlutans.

Það hlýtur að vera metnaðarmál fyrirtækisins að kappkosta við að ljúka framkvæmdum við Sauðárkrókslínu 2 sem fyrst og eiga í góðu samtali við hagsmunaaðila eins og Sveitarfélagið Skagafjörð, sem byggist á hreinskilni, ábyrgð, víðsýni, gagnkvæmri virðingu og samstarfsvilja, svo vitnað sé í eigin orð Landsnets í frétt sinni á heimasíðu fyrirtækisins í gær. Sveitarfélagið Skagafjörður lýsir sig sem fyrr reiðubúið í uppbyggilegt samtal um styrkingu raforkukerfisins í Skagafirði þannig að tryggja megi afhendingaröryggi sem allra best og koma í veg fyrir að aðstæður eins og þær sem uppi voru í síðustu viku komi fyrir aftur.