Fara í efni

Hvernig senda skal reikninga til sveitarfélagsins á rafrænan máta

15.02.2023

Af gefnu tilefni er rétt að ítreka hvernig senda skal reikninga á rafrænan hátt til sveitarfélagsins, en frá og með 1. janúar 2023 hefur eingöngu verið tekið á móti reikningum með rafrænum hætti hjá sveitarfélaginu og stofnunum þess.

Reikningar skulu vera á svokölluðu XML formi og miðlað í gegnum skeytamiðlara. Ekki er tekið við PDF reikningum í gegnum tölvupóst.

Mælt er með að söluaðilar gefi út rafræna reikninga í sínum sölukerfum og miðli í gegnum skeytamiðlara. Aðilar sem ekki hafa rafrænt reikningakerfi geta sent sveitarfélaginu reikning á rafrænu formi sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins. Smellt er á hnappinn "Rarfænir reikningar" hægra megin á forsíðu og fyllt út form sem upp kemur (sjá mynd hér að neðan) og reikningur sendur beint þaðan.