Fara í efni

Hunda- og kattahreinsun á morgun

11.01.2023

Eins og áður hefur verið tilkynnt býður dýralæknir skráðum hunda- og kattaeigendum í sveitarfélaginu upp á hreinsun gæludýra á morgun, fimmtudaginn 12. janúar í Áhaldahúsinu, Borgarflöt 27 á Sauðárkróki.

Kattahreinsun verður frá kl. 16:00 til 17:00 og hundahreinsun frá kl. 17:00 til 18:00.

Hreinsunin er innifalin í verði gæludýraskráningar og stendur skilvísum gæludýraeigendum til boða.