Fara í efni

Hunda- og kattahreinsun

01.03.2024
Mynd af Netinu.

Fimmtudaginn 7. mars nk. býður dýralæknir skráðum hunda- og kattaeigendum upp á hreinsun gæludýra í Áhaldahúsinu Borgarflöt 27 á Sauðárkróki. Kattahreinsun verður frá kl. 16-17 og hundahreinsun frá kl. 17-18.

Hreinsunin er innifalin í verði gæludýraskráningar og stendur skilvísum gæludýraeigendum til boða.

Viljum við minna á að eigendum hunda og katta í öllu sveitarfélaginu er skylt að láta hreinsa hunda og ketti sína einu sinni á ári, til að stemma stigu við útbreiðslu sníkjudýra. 

Reglugerð um hollustuhætti, 57. gr. 941/2002.

 

Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi.