Fara í efni

Huga þarf að trjágróðri við lóðamörk

17.08.2021

Nú þegar að skólar fara að hefjast fer umferð gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda að aukast á ný. Svo allir komi heilir heim og sjáist vel í umferðinni er mikilvægt að trjágróður nái ekki út fyrir lóðamörk og hindri eða skyggi á umferð vegfarenda. Garðeigendur í Skagafirði eru því hvattir til að taka stöðuna á sínum trjágróðri og snyrta ef þörf krefur.