Fara í efni

Hrekkjavaka í Glaumbæ 31. október

26.10.2026

Það er eitthvað skuggalegt í vændum í Skagafirði laugardaginn 31. október frá kl. 19–21, en þá gefst íbúum og gestum frábært tækifæri til að upplifa hrekkjavökustemningu og heyra íslenskar draugasögur.

Sýningarnar í gamla bænum taka á sig skuggalega mynd og Miklabæjar-Sólveig og fleiri fara á stjá. Í baðstofunni verða sagðar draugasögur og fróðleikur um gömul hindurvitni og uppruna hrekkjavökunnar. Í Áshúsi verður síðan vinnustofa fyrir yngri kynslóðina þar sem hægt verður að skera út grasker og rófur

Einnig verður mögulegt að kaupa léttar veitingar.

Börn 12 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum og það gæti verið betra fyrir viðkvæmar sálir á öllum aldri að hafa fylgdarfólk sér til halds og trausts.

Ókeypis aðgangur fyrir börn undir 18 ára og fullorðna í búningum.