Holur í malbiki – gott að vera á varðbergi
17.03.2026
Vakin er athygli á því að vegna tíðarfars undanfarnar vikur hafa myndast holur á götum sveitarfélagsins. Ökumenn eru því beðnir um að sýna varkárni á næstu dögum.
Starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar mun fara í viðgerðir þegar veðrið tekur að lægja.
Íbúar eru hvattir til þess að tilkynna um staðsetningu hola með því að senda ábendingu í gegnum ábendingagátt eða með því að senda póst á skagafjordur@skagafjordur.is.