Fara í efni

Höfundar lesa úr verkum sínum 25. nóvember

20.11.2015
Lesið verður úr nýjum bókum í Safnahúsinu.

Nokkrir höfundar munu heimsækja bókasafnið miðvikudaginn 25. nóvember næstkomandi og lesa úr nýútkomnum verkum sínum. Það eru Eyþór Árnason, Ingibjörg Hjartardóttir og Illugi Jökulsson sem lesa úr verkum sínum og Ingibjörg Hafstað sem les úr bók Önnu P. Þórðardóttur. Allir eru velkomnir og um að gera fyrir þá sem ekki hafa komið í Safnahúsið eftir endurbæturnar að líta inn og njóta upplesturs í leiðinni.