Fara í efni

Hlutastarf í liðveislu/heimaþjónustu er laust til umsóknar

19.11.2014

Hlutastarf í liðveislu/heimaþjónustu er laust til umsóknar

Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir að ráða starfsmann sem fyrst í 50% starf í liðveislu/heimaþjónustu. Í starfinu felst að aðstoða fatlaða einstaklinga við allar athafnir daglegs lífs, persónulegar og félagslegar. Þjónustan er veitt inni á heimili hvers og eins og utan þess þegar við á hverju sinni.

Hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfi og reynsla er kostur. Leitað er eftir einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á frumkvæði, gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri og æskilegt er að viðkomandi sé með bílpróf.

Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2014

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www. skagafjordur.is (störf í boði) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi, steinnunnr@skagafjordur.is, s: 455-6000/899-2003.

Sækja um