Fara í efni

Hlutastarf í liðveislu er laust til umsóknar

19.04.2017

Hlutastarf í liðveislu er laust til umsóknar

 

Tímabil starfs: 15. maí til 15. september 2017, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Starfshlutfall: 75% starfshlutfall.

Starfsheiti: Félagsleg liðveisla II.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar einstakling með fötlun. Starfið felst meðal annars í aðstoð við athafnir daglegs lífs sem og félags- og frístundarlega aðstoð.

Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fólki með fötlun og hefur að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttsemi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjandi skal hafa náð 18 ára aldri.

Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2017

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti: sigthrudurh@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.