Fara í efni

Hlaup hafið í Vestari-Jökulsá í Skagafirði

10.09.2021
Héraðsvötn í Skagafirði
Tilkynning frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra.
 
Hlaup er hafið í Vestari-Jökulsá í Skagafirði en upptakakvíslar hennar koma undan Hofsjökli norðanverðum. Vestari-Jökulsá rennur saman við Austari-Jökulsá um 8 kílómetra sunnan við mynni Norðurárdals (á móts við Silfrastaði) og mynda þær saman Héraðsvötn. Þjóðvegur 1 milli Varmahlíðar og Akureyrar liggur með Héraðsvötnum á kafla.
 
Ekki er reiknað með hættu af hlaupinu en líklegt er að vaxi nokkuð í Héraðsvötnum og að þau litist af aurburði. Einhver brennisteinslykt getur fylgt hlaupinu og rétt að fólk dvelji ekki við ána á meðan á hlaupinu stendur.