Hinsegin hátíð í Skagafirði – vilt þú vera með?
Hinsegin hátíð í Skagafirði verður haldin dagana 10.-15. ágúst næstkomandi. Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Lögð verður áhersla á að vekja athygli á mannréttindum og margbreytileika ásamt því að gleðjast og hafa gaman, öll saman.
Stefnt er að því að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá víðsvegar um Skagafjörð og eru einstaklingar, hópar eða félagasamtök sem hafa áhuga á því að taka þátt og vera með í dagskránni beðin um að senda tölvupóst á mannlif@skagafjordur.is fyrir 31. júlí nk.
Hvernig getur þú tekið þátt í hátíðinni?
-
Haldið viðburð – t.d. tónlistaratriði, fræðsluviðburð eða skapandi uppákomu.
-
Boðið upp á sérstaka afslætti eða tilboð í tengslum við hátíðina.
-
Skreytt og lýst upp rými í litum hátíðarinnar.
-
Flaggað fána hinseginleikans í tilefni hátíðarinnar.
Verkefnið er eitt af þeim fjölbreyttu og spennandi verkefnum sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði SSNV fyrir árið 2026.