Fara í efni

Hinsegin hátíð í Skagafirði – vilt þú vera með?

11.06.2026

Hinsegin hátíð í Skagafirði verður haldin dagana 10.-15. ágúst næstkomandi. Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Lögð verður áhersla á að vekja athygli á mannréttindum og margbreytileika ásamt því að gleðjast og hafa gaman, öll saman.

Verkefnið er eitt af þeim fjölbreyttu og spennandi verkefnum sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði SSNV fyrir árið 2026.

Stefnt er að því að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá víðsvegar um Skagafjörð og eru einstaklingar, hópar eða félagasamtök sem hafa áhuga á því að taka þátt í skipulagi hátíðarinnar á einhvern hátt og/eða eru með hugmynd að dagskrárliðum eru hvött til að senda tölvupóst á mannlif@skagafjordur.is.