Helgaropnun í Sundlaug Sauðárkróks
Stefnt er að helgaropnun frá kl. 10:00-18:00. Sundlaugagestir geta nýtt heitu pottana, sánuna og eimbaðið.
Framkvæmdum við Sundlaug Sauðárkróks miðar ágætlega, en áfram verður talsverð röskun á opnunartíma þar til verkinu er lokið. Á mánudaginn þarf að loka sundlauginni aftur, en verið er að leggja snjóbræðslu í suður- og vesturbakka eldra laugarkars og steypa þar kant. Þá er einnig verið að mála eldra laugarkarið, setja þar nýja ráspalla ásamt því að ganga frá samskeytum nýrrar og eldri byggingar auk annarra innandyraverkefna.
Ef vel gengur verður stefnt að sams konar opnun um næstu helgi. Upplýsingar um það verða birtar þegar nær dregur.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar framkvæmdir hafa valdið og þakkar sveitarfélagið íbúum fyrir þolinmæði og skilning.