Fara í efni

Heitavatnslaust í neðri bænum á Króknum á sunnudaginn

17.04.2015
Starfsmenn Skagafjarðarveitna

Heitavatnslaust verður í neðri bænum á Króknum frá kl 8:00 sunnudaginn 19. apríl. Í vikunni bilaði stofnæðin inn í bæinn og gert var við til bráðabirgða síðastliðinn miðvikudag. Á sunnudaginn verður lokað fyrir heita vatnið og viðgerðin kláruð sem getur tekið um 6-8 klst ef ekkert óvænt kemur uppá. Veitustarfsmenn vona að bæjarbúar sýni biðlund á meðan á viðgerð standi.