Fara í efni

Heimilið, Fellstúni 19b auglýsir eftir kvenkyns starfsmanni

01.03.2018

Heimilið, Fellstúni 19b auglýsir eftir kvenkyns starfsmanni

 

Tímabil starfs: 29. mars 2018 – 6. maí 2018, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Starfshlutfall: 62% starfshlutfall.

Starfsstöð: Fellstún 19b.

Starfsheiti: Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga. Starfið felur í sér að  aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og  afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Menntunarkröfur: Gerð er krafa um bílpróf. Önnur menntun er kostur.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.

Vinnutími: Vaktavinna. (Dag-, kvöld- og helgarvaktir.)

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2018

Nánari upplýsingar: Ragnheiður M. Rögnvaldsdóttir, forstöðumaður, í síma 453-6070 eða með tölvupósti; ragnheidurr@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.