Fara í efni

Heimilið að Skúlabraut 22, Blönduósi auglýsir starf matráðs

22.09.2017

 Heimilið að Skúlabraut 22, Blönduósi auglýsir starf matráðs

 

Upphaf starfs: 23. október 2017, eða eftir samkomulagi.

Starfsheiti: Matráður III.

Starfshlutfall: 70% starfshlutfall.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst yfirumsjón með eldhúsi, sjá um matseld (heitan mat) og bakstur, skipuleggur matseðla allt að mánuð fram í tímann, framreiðsla á mat, frágangur og þrif. Annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum í samráði við forstöðumann. Starfið hentar konum jafnt sem körlum.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera góða færni í mannlegum samskiptum, er með ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og áreiðanleika í starfi. Reynsla af vinnu í eldhúsi/mötuneyti eða sambærilegu starfi er æskileg.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2017

Nánari upplýsingar: Ari Jóhann Sigurðsson, forstöðumaður, sími: 893-6673/452-4960 eða arijohann@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.