Hátíðartónleikar og skólaslit tónlistarskóla Skagafjarðar í Miðgarði 23. maí kl. 16
22.05.2025
Í tilefni af 60 ára afmæli tónlistarkennslu á Sauðárkróki verða haldnir tónleikar í Menningarhúsinu Miðgarði, 23. maí klukkan 16:00, þar sem nemendur koma fram.
Áfanga og stigspróf verða afhent. Veitt verður úr Minningarsjóði Aðalheiðar Erlu Gunnarsdóttur. Jón Þorsteinn Reynisson fyrrum nemandi skólans leikur nokkur lög með Tríó Mýr.
Léttar veitingar verða í boði og eru allir velunnarar hjartanlega velkomnir.