Hátíðarhöld og tónlist setja svip á Hofsós í sumar
Óhætt er að segja að Hofsós verði miðpunktur menningar í sumar, en hátíðarhöld og tónlist munu fylla bæinn af lífi á næstu vikum.
Það verður sannkölluð hátíðarstemmning þegar bæjarhátíðin Hofsós heim verður haldin dagana 19.–21. júní. Dansleikirnir verða á sínum stað en í ár mun Eyþór Ingi skemmta gestum og svo verður kúrekaball með Mannamót. Markaðurinn í Höfðaborg verður á sínum stað að ógleymdu súpuröltinu fræga, varðeldi og brekkusöng. Svo er vert að nefna Sushi pop-up, prjónahitting og barnadagskrá svo fáeitt sé nefnt.
Dagskráin birtist þegar nær dregur hér.
Þann 18. júlí mun síðan tónlistarmaðurinn Mugison halda tónleika við brekkuna við safnasvæðið. Tónleikarnir fara fram kl. 15:00–16:00 og er fólk hvatt til að koma með teppi og koma sér vel fyrir.
Miðasala fer fram hér.
Að lokum má síðan nefna tónlistarhátíðina Sveitavegir sem fer fram 25. júlí. Þar mun tónlistarfólk úr Skagafirði og að sunnan koma saman og flytja klassíska sveitatónlist í bland við þjóðlög og íslenska sveitatónlist. Hátíðin fer fram í Höfðaborg, en dagskráin hefst kl. 15:00 með upphitun sem er opin öllum. Megindagskráin hefst síðan kl. 20:00 og þar koma meðal annars fram Dulúð, Lára og húsið í Sléttuhlíð, Lævís hestur, Sveitavegir Helga Sæmundar og félaga og Sverrison Hotel.
Miðasala fer fram hér.
Allir sveitavegir liggja svo sannarlega til Hofsóss í sumar.