Háskólalestin kemur til Árskóla í Sæluvikunni
Árskóli fær skemmtilega og fræðandi heimsókn þegar Háskólalestin frá Háskóla Íslands kemur í skólann dagana 16.–18. apríl nk.
Háskólalestin er metnaðarfullt verkefni á vegum Háskóla Íslands, þar sem markmiðið er að efla áhuga nemenda á vísindum, fræðum og háskólanámi með lifandi og fjölbreyttri kennslu. Háskólalestin býður m.a. upp á kennarasmiðjur og fjölbreytt námskeið fyrir nemendur á unglingastigi Árskóla, Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna. Má þar helst nefna námskeið í blaða- og fréttamennska, tilraunastofa í eðlisfræði, vísindi bleikjunnar - slepjulegt og saltað, hugrekki í hegðun, íþrótta- og heilsufræði, japönsk fræði, skurðlækingar, sjúkraþjálfun, stjörnufræði, skapandi tæknismiðja og fallbyssu skotkeppni.
Á laugardeginum 18. apríl, frá kl. 11:00 - 14:00 verður haldið opið vísindahús þar sem íbúum í Skagafirði er boðið að koma og upplifa vísindi á lifandi og aðgengilegan hátt. Þar gefst einstakt tækifæri fyrir fjölskyldur og áhugasama að kynnast starfi háskólasamfélagsins.
Heimsókn Háskólalestarinnar er kærkomin viðbót við dagskrá Sæluviku og styrkir tengsl skóla, samfélags og háskólasamfélagsins með fræðslu, forvitni og sköpun í fyrirrúmi.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér.