Fara í efni

Handverkssýning og sölubasar á Dagdvöl aldraðra

10.11.2026

Laugardaginn 14. nóvember kl. 14:00–17:00 verður sannkölluð jólastemning á handverkssýningu notenda Dagdvalar aldraðra og sölubasar.

Á boðstólum verða fallegir munir og hægt verður að gæða sér á vöfflum, heitu súkkulaði og kaffi.  Verð er 1.500 kr. fyrir 10 ára og eldri og rennur allur ágóði kaffisölunnar til föndurstofu Dagdvalar.

Verið öll hjartanlega velkomin.

Nánari upplýsingar og skráning á söluborð í síma 453-5909.