Fara í efni

Hættuástand yfirvofandi vegna krapastíflu á Sauðárkróki

28.09.2021
Myndin sýnir lokanir á vegum vegna krapastíflunnar. Grænu merkingarnar eru lokanir
Lögreglunni á Norðurlandi vestra, bárust boð um að Sauðá á Sauðárkróki, væri hætt að renna að mestu leyti. Talið er að krapastífla hafi myndast í henni og eru nú meðlimir björgunarsveita að staðsetja stífluna. Lögreglan biðlar til fólks að vera ekki á ferð við Sauðánna og alls ekki í Litla-skógi né leiksvæði Árskóla, einnig að vera ekki á ferð vestan við verknámshús Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki.