Fara í efni

Grunnskólinn austan Vatna auglýsir kennslustöður lausar til umsóknar

06.06.2014

Grunnskólinn austan Vatna auglýsir eftirfarandi kennslustöður lausar til umsóknar:

Starfsstöð: Hofsós

    
Smíðakennari:

      Um er að ræða 30% starfshlutfall.

     Handmenntakennari:
      Um er að ræða 30% starfshlutfall.

     Myndmenntakennari:
      Um er að ræða 30% starfshlutfall.

     Umsjónarkennari:
      Um er að ræða 60% starf í 7. og 8. bekk í bland við aðrar kennslugreinar á unglingastigi eða í fagi. Æskilegt sérsvið á sviði raungreina og upplýsingatækni.
(Mögulegt að hækka starfshlutfall í allt að 100% með fyrrgreindri list og verkgreinakennslu.)

 

Starfsstöð: Sólgarðar.


Um er að ræða skipta stöðu deildarstjórnunar og almennrar kennslu sem gerir ráð fyrir 21 tíma kennsluskyldu miðað við fullt starf. Fjölbreyttar kennslugreinar svo sem íslenska, tónmennt, hannyrðir og fleira.

 

Starfsstöð: Hólar í Hjaltadal.

     Umsjónarkennari:
      
Um er að ræða 100% starf í 5. – 7. bekk, mjög fjölbreyttar kennslugreinar að meðtöldum list og verkgreinum.

     Almennur kennari:
      Um er að ræða 90% starfshlutfall. Fjölbreyttar kennslugreinar svo sem samfélagsfræði, náttúrufræði, tungumál, list og verkgreinar.

 

 Hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Faglegur metnaður.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.

 Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Samband íslenskra sveitafélaga.

  Umsóknarfrestur er til  miðnættis 22. júní 2014.

  Umsóknum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins Skagafjarðar (störf í boði) eða í íbúagátt sveitarfélagsins.


Nánari upplýsingar um störfin veitir Jóhann Bjarnason, skólastjóri, í síma 865-5044 eða með því að senda fyrirspurn á johann@gsh.is.

Sækja um