Fara í efni

Grunnskólinn austan Vatna auglýsir eftir íþróttakennara

08.06.2015

 

Grunnskólinn austan Vatna auglýsir eftir íþróttakennara

Grunnskólinn austan Vatna óskar eftir að ráða íþróttakennara til starfa næsta skólaár. Um er að ræða 90% starf á öllum kennslustöðum skólans, Hofsósi, Hólum og Sólgörðum. Möguleiki er að stækka stöðuna í allt að 100% starf með annarri kennslu, valgrein eða verkefnum, svo sem vinaliðaverkefninu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Íþróttakennararéttindi.
  • Faglegur metnaður.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.

Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna Félags grunnskólakennara.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 21. júní 2015

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (störf í boði) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Bjarnason, skólastjóri, í síma 865-5044 eða með því að senda fyrirspurn á johann@gsh.is.