Fara í efni

Grunnskólinn austan Vatna auglýsir eftir deildarstjóra sérkennslu

20.05.2015

 

Grunnskólinn austan Vatna auglýsir eftir deildarstjóra sérkennslu

Grunnskólinn austan Vatna óskar eftir að ráða deildarstjóra sérkennslu til starfa næsta skólaár. Um er að ræða 100% starf.
Í starfinu felst: sérkennsla, skipulag og umsjón, greiningarvinna og samstarf við aðra grunnskóla í Skagafirði.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Sérkennararéttindi.
  • Æskilegt að hafa réttindi til að leggja fyrir greiningarprófin Logos og Talnalykil.
  • Faglegur metnaður.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.

Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna Félags grunnskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2015

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (störf í boði) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Bjarnason, skólastjóri, í síma 865-5044 eða með því að senda fyrirspurn á johann@gsh.is.