Fara í efni

Grunnskólakennari GaV - smíðar og valgreinar

27.06.2018

Grunnskólakennari – smíðar og valgreinar

 

Upphaf starfs: 1. ágúst 2018.

Starfsheiti: Grunnskólakennari.

Starfshlutfall: Um 40% starfshlutfall.

Lýsing á starfinu: Kennir smíðar og valgreinar. Grunnskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um grunnskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá, skólanámskrá og stefnu sveitarfélagsins.

Menntunarkröfur: Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.

Hæfniskröfur: Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla og áhugi á að starfa með börnum. Hreint sakavottorð skv. lögum um grunnskóla.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna FG.

Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2018

Nánari upplýsingar: Jóhann Bjarnason, skólastjóri, í síma 865-5044, johann@gsh.is.

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá, prófskírteini og leyfisbréfi skal skilað í gegnum íbúagátt  sveitarfélagsins sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

Grunnskólinn austan Vatna kennir á tveimur starfsstöðum; Hofsósi og Hólum. En þær voru upphaflega þrjár, sameinaðar í eina stofnun 1. ágúst 2007. Á Hólum eru nemendur í 1. – 7. bekk. Á Hofsósi eru nemendur frá 1. – 10. bekk, en starfsstöð þar er jafnframt safnskóli fyrir elsta stigið 8. – 10. bekk. Veturinn 2017-2018 voru 64 nemendur skráðir í skólann. Þar af eru 39 nemendur á Hofsósi, 18 nemendur á Hólum og 7 nemendur á Sólgörðum. Skólinn hefur um nokkurt skeið lagt áherslu á kennslu og vinnu með nýsköpun og eflingu heimabyggðar. Grunnskólinn austan vatna tekur þátt í verkefni embættis landlæknis, heilsueflandi grunnskóli.