Grunnskóli austan Vatna komst áfram í Málæði
Í síðustu viku fékk skólinn þau gleðilegu tíðindi að lag Írisar og Bettýjar nemenda í GaV, var valið áfram í Málæði. Lagið þeirra heitir Aftur heim.
Annað árið í röð er GaV því einn af þremur skólum á landinu sem er valinn til að vinna með þekktum tónlistarmönnum að frekari texta- og lagasmíði. Þann 14 október nk. koma þau Birgitta Haukdal og Vignir Snær, ásamt tökumanni frá RÚV í heimsókn í skólann til að vinna áfram með lagið og textann. Allir nemendur á unglingastigi munu taka þátt í þeirri vinnu.
Hinn hluti verkefnisins í Málæði er að semja texta sem tónlistarfólkið Klara Elías og Vignir Snær Vigfússon semja nýtt lag við. Allir nemendur á unglingastigi tóku þátt í þeirri vinnu og sendu inn texta um ástina, símanotkun, kynáttunarvanda og fleira. Það verður spennandi að heyra lokaafurðina í sjónvarpsþætti á RÚV á degi íslenskrar tungu.
Sveitarfélagið óskar skólanum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur og það verður gaman að sjá afraksturinn af þessari vinnu í nóvember.