Fara í efni

Götulokun í Víðigrund á Sauðárkróki

06.10.2026

Víðigrund á Sauðárkróki verður lokuð fyrir allri umferð frá kl. 16:30 í dag, þriðjudag 6. október. Gatan verður opnuð aftur seinni part fimmtudags 8. október.

Á meðfylgjandi korti má sjá aðrar gönguleiðir (rauðar línur) að leikskólanum Ársölum, yngra stigi. Þeir foreldrar og umsjónarmenn barna sem geta gengið með börnin eru hvött til þess og samnýta ferðir ef kostur er.

Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Tengiliðir vegna framkvæmdarinnar eru:

  • Ásta Pálmadóttir, hjá Steypustöð Skagafjarðar, sími 894-8961
  • Gunnar Páll Ólafsson, hjá Skagafirði, sími 660-4631