Götulokanir vegna 17. júní hátíðarhalda og skrúðgöngu
17.06.2026
Vegna skrúðgöngu og 17. júní hátíðarhalda verður tímabundið lokað fyrir umferð bifreiða og/eða umferð stýrt á eftirfarandi götum frá kl. 13:00 til 14:00:
- Gatnamót Skagfirðingabrautar og Skólastígs.
- Gatnamót Skagfirðingabrautar og Ránarstígs.
- Gatnamót Skagfirðingabrautar og Bárustígs.
- Gatnamót Skagfirðingabrautar og Öldustígs.
- Gatnamót Skagfirðingabrautar og Hegrabrautar/Sæmundarhlíðar
- Gatnamót Sæmundarhlíðar og Spítalastígs
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.