Gömlupeysudagur í Safnahúsinu
05.02.2026
Starfsfólk Safnahússins nýtir ýmis tækifæri til að gera sér dagamun í vinnunni. Í dag var efnt til Gömlupeysudags, þar sem starfsfólk dró fram úr skúmaskotum gamlar peysur.
Eins og meðfylgjandi mynd ber með sér, fundust nokkrar peysur sem voru um það bil 30-40 ára gamlar, sem telst kannski ekki mjög gamalt hjá fólki sem vinnur í safnageiranum. Engu að síður skemmtilegar og litríkar peysur sem starfsfólkið skartar á myndinni.