Fara í efni

Góð heimsókn Kvenfélags Lýtingsstaðahrepps á dagdvöl og dvalarheimilið

20.02.2025
Frá hægri, Stefanía Sif Traustadóttir, forstöðumaður, Valgerður Kjartansdóttir, Guðbjörg Elsa Helgadóttir, Ása Sóley Ásgeirsdóttir, Guðbjörg Valgarðsdóttir, Rannveig Einarsdóttir, deildarstjóri. Í stólunum nýju sitja þær Edda Stefáns Þórarinsdóttir og Margrét Ingvarsdóttir.

Kvenfélag Lýtingsstaðahrepps kom í heimsókn í dagdvöl aldraðra og á dvalarheimilið á Sauðárkróki á dögunum. Þær buðu notendum og íbúum uppá dýrindis kaffihlaðborð ásamt söng og harmonikkuleik frá feðgunum á Hóli í Lýtingsstaðahrepp, Ásgeiri og Guðmundi.

Forstöðumaður dagdvalar, Stefanía Sif, nýtti tækifærið og þakkaði þeim fyrir veglega peningagjöf sem þær gáfu dagdvölinni í minningu þriggja kvenfélagskvenna sem allar nýttu sér þjónustu dagdvalar. Peningagjöfin var nýtt til kaupa á fjórum nýjum rafknúnum hægindastólum sem koma sér afar vel fyrir notendurna.

Bestu þakkir til allra kvenna í Kvenfélagi Lýtingsstaðahrepps.