Glæsileg uppskeruhátíð sumarlesturs á bókasafninu
Í lok ágúst hélt bókasafnið uppskeruhátíðina Sumarlestrarlok, sem var endapunktur á lestraráskorun sumarsins. Sumarlesturinn er sameiginlegt átak Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasafna um allt land. Að þessu sinni bar sumarlesturinn yfirskriftina Lestrarsprettur Gúnda geithafurs.
Þátttakan var góð og var um 150 lestrarmiðum skilað inn á safnið í sumar. Á Sumarlestrarlokum var lesið upp úr nýrri barnabók, boðið upp á ávexti og djús og dregnir út fjórir heppnir þátttakendur sem fengu í verðlaun nýja barnabók eftir Þórarin Eldjárn. Þau sem hlutu verðlaun voru Emilý Ósk, Karl, Kristófer Orri og Sunneva Dís.
Lestrarspretti Gúnda geithafurs var þannig háttað að börn fengu sérstakt vegabréf þar sem þau fylgdust með ferðalagi Gúnda geithafurs um landakort fullt af spennandi áfangastöðum. Markmiðið var að lesa í að minnsta kosti 15 mínútur á dag og merkja við framvindu sína á leiðinni. Fyrir hverja klukkustund af lestri fengu börnin stimpil eða límmiða í vegabréfið sitt ásamt happamiða til að setja í lukkupott. Verkefnið hvatti börnin til að lesa reglulega yfir sumarmánuðina og gerði lesturinn að skemmtilegu ævintýri.
Sveitarfélagið óskar öllum þátttakendum innilega til hamingju með frábæran árangur.