GaV í vettvangsferð í Fljótin
Mánudaginn 16. nóvember fór miðstigið í Grunnskóla austan Vatna í skemmtilega og fróðlega vettvangsferð í Fljótin. Á dagskrá voru tvær áhugaverðar heimsóknir þar sem nemendur fengu bæði að fræðast og upplifa ýmislegt nýtt.
Fyrsti viðkomustaður var Skeiðsfossvirkjun, þar sem Sigtryggur Kristjánsson tók vel á móti hópnum og fræddi nemendur og starfsfólk um starfsemi virkjunarinnar. Heimsóknin var sérstaklega áhugaverð þar sem nemendur hafa verið að læra um orku- og vatnsaflsvirkjanir í náttúrufræði. Það var þetta frábært tækifæri fyrir krakkana að sjá með eigin augum hvernig það sem þau hafa lært í skólastofunni tengist raunveruleikanum og dýpka þannig skilning sinn á viðfangsefninu.
Að heimsókninni lokinni lá leiðin í Haganesvík þar sem tveir frábærir starfsmenn tóku hlýlega á móti hópnum. Þar var fræðst um sögu staðarins og skoðað glæsilegt hljóðver á vegum Deplar Farm. Heimsókninni lauk svo á notalegum nótum þegar boðið var upp á heitt súkkulaði og köku við mikla ánægju nemenda.
Ferðin var einstaklega vel heppnuð og alls staðar var tekið á móti hópnum af mikilli hlýju og gestrisni. Starfsmenn og nemendur vilja koma á framfæri innilegu þakklæti til allra sem tóku á móti hópnum, fræddu og gerðu daginn svona eftirminnilegan. Þá vilja þau einnig þakka frábæra rútubílstjóranum sem sá til þess að ferðalagið gengi eins og í sögu.
Óhætt er að segja að hópurinn hafi komið heim reynslunni ríkari eftir skemmtilegan dag í Fljótunum.