Gatnaframkvæmdir við Víðigrund
15.04.2026
Vegna gatnaframkvæmda sveitarfélagsins við Víðigrund verður svæðið lokað að hluta fyrir umferð á meðan framkvæmdum stendur. Fyrirhugað er að loka hálfri götunni í einu en tryggt verður að umferð komist alltaf að leikskólanum. Framkvæmdir hefjast í lok apríl og áætlað að þeim ljúki í október, að því gefnu að veður og aðstæður leyfi.
Um framkvæmdina
- Unnið verður að endurbótum á öllum lögnum, göngu- og akstursleiðum.
- Í kjölfarið verður yfirborð gatna og gangstétta malbikað.
- Hljóð- og rykmengun getur aukist tímabundið á meðan á framkvæmdum stendur.
Umferðar- og aðgengismál
- Umferð verður tímabundið beint um nálægar götur.
- Íbúar eru beðnir um að leggja bílum utan vinnusvæðis eftir því sem unnt er.
- Á meðfylgjandi yfirlitskorti er hægt að sjá tímabundin bílastæði þar sem hægt verður að leggja meðan á framkvæmdinni stendur.
- Gæta þarf ítrustu varúðar í kring um vinnusvæðið og mikilvægt að brýna sérstaklega fyrir börnum um hættur í við vinnusvæði.
Þakkir fyrir skilning
Við biðjum íbúa velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir gott samstarf og skilning á meðan framkvæmdum stendur.