Fara í efni

Garðyrkjudeild sveitarfélagsins auglýsir sumarstörf

27.02.2015

Garðyrkjudeild Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar

Garðyrkjudeildin óskar eftir að ráða í þrjár stöður tímabundið.

50% starf frá 11. mars til 30. september, til aðstoðar við ræktun sumarblóma, umhirðu þeirra og annarra verka hjá garðyrkjudeild.

2 x 100% starf frá 1. apríl til 30. september. Störfin fela í sér almenna garðyrkjuvinnu.

Hæfniskröfur: Lögð er áhersla á frumkvæði, gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla er kostur.

Störfin henta bæði körlum sem konum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar eða Öldunnar stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2015

Sótt er um störfin á heimasíðu sveitarfélagsins (störf í boði) eða í íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um störfin gefur Helga Gunnlaugsdóttir, garðyrkjustjóri í síma 453-5811 eða netfangið helga@skagafjordur.is.

Hlutverk Garðyrkjudeildarinnar á sumrin er almenn garðyrkjuvinna, viðhald gróðurs, göngustíga, leiksvæða og grænna svæða sveitarfélagsins.

 

Sækja um