Fara í efni

Garðlönd Sauðárkróki

28.04.2022
Sauðárkrókur

Íbúar Sauðárkróks, við viljum vekja athygli ykkar á því, að til boða stendur, gjaldfrjálst garðland á Sauðárkróki í vor. Því miður hafa fáir sýnt áhuga og ekki verður af þessu nema fleiri taki þátt. Ætlunin er að útbúa garðlönd (20 m2 reiti) fyrir áhugasama á Nöfum, þar sem rækta mætti kartöflur og/eða aðrar matjurtir. Þeir sem hafa áhuga sendi tölvupóst á kari@skagafjordur.is.

Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi.