Vakin er athygli á því að gámastöðvarnar á Sauðárkróki og í Varmahlíð loka eftir hádegi í dag, fimmtudaginn 19. mars, vegna veðurs.
Miklar vindhviður eru á svæðinu, sem skapa hættu fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.