Fara í efni

Fyrsti fundur Öldungaráðs Skagafjarðar

31.08.2026

Öldungaráð kom saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum 27. ágúst sl. Ráðið starfar í umboði sveitarstjórnar og hefur það hlutverk að vera formlegur og milliliðalaus vettvangur samráðs og samstarfs við sveitarstjórn og félagsmála- og tómstundanefnd um hagsmuni eldri borgara í sveitarfélaginu.

Öldungaráð er skipað sjö fulltrúum. Þrír einstaklingar eru tilnefndir af Félagi eldri borgara í Skagafirði og þrír af sveitarstjórn Skagafjarðar. Sjöundi fulltrúinn er síðan tilnefndur af Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Aðalmenn frá FEBS eru Ingimar Jóhannsson, Gestur Þorsteinsson og Sigurjón Gestsson, til vara Ragna Jóhannsdóttir, Erna Geirsdóttir og Edda Haraldsdóttir. Aðalmenn frá sveitarstjórn eru Jóhanna Björnsdóttir, Merete Rabölle og Silvía Sif Halldórsdóttir, til vara Halldór Jón Sigurðsson, Sveinn Þ. Finster Úlfasson og Sigrún Eva Helgadóttir. Aðalmaður frá HSN er Selma Björt Magnúsdóttir, til vara Kristrún Snjólfsdóttir. Á fundinum var ákveðið að Ingimar Jóhannsson yrði formaður og Jóhanna Björnsdóttir varaformaður.

Ráðið nýtur aðstoðar starfsmanna fjölskyldusviðs við boðun funda og milligöngu við annað starfsfólk sveitarfélagsins um útvegun gagna vegna umfjöllunarefna ráðsins. Allar fundargerðir öldungaráðs verða aðgengilegar á heimasíðu Skagafjarðar undir liðnum aðrar nefndir.