Fara í efni

Fyrsta skemmtiferðaskipakoman á Sauðárkrók í sumar

06.07.2023
Azamara Journey í Sauðárkrókshöfn

Fyrsta skemmtiferðaskipakoma sumarsins á Sauðárkrók er í dag með komu skemmtiferðaskipsins Azamara Journey.

Azamara Journey er 181 m á lengd og rúmar tæplega 700 farþega. Ýmis afþreying er í boði í Skagafirði fyrir farþega skipsins, margar flottar skipulagðar ferðir á vegum ferðaþjónustunnar m.a. í Drangey, á hestbak, hringferðir um Skagafjörð m.a. í Glaumbæ, á Hofsós og Hóla, heimsókn í 1238 - Baráttan um Ísland o.fl. Margir farþegar kusu að rölta um bæinn og skoða sig um. Það vildi svo skemmtilega til að rostungurinn sem verið hefur á svæðinu frá því fyrir helgi (ef um sama rostung er að ræða) kíkti líka í heimsókn í dag og kom sér vel fyrir á smábátahöfninni og fylgdist með skipinu. 

Alls verða fimm skemmtiferðaskipakomur á Sauðárkrók í sumar:

6. júlí - Azamara Journey

12. júlí - Azamara Journey

27. júlí - Scenic Eclipse 2

14. ágúst - Azamara Pursuit

12. september - World Traveller

 

Hér má sjá myndasyrpu frá deginum: