Fara í efni

Fyrirlestur um félagslega einangrun 30. janúar nk.

23.01.2026

Sveitarfélagið býður íbúum Skagafjarðar á áhugaverðan fyrirlestur föstudaginn 30. janúar kl. 17:00 í Húsi Frítímans á Sauðárkróki.

Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur og Svavar Knútur tónlistarmaður ætla að fjalla um félagslega einangrun auk þess að taka samtal við fundargesti um bæði þær áskoranir og möguleika sem finnast í samfélaginu í Skagafirði.

Félagsleg einangrun er vaxandi lýðheilsuvandi um allan heim og hefur m.a. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) skilgreint hana sem lýðheilsuvá á pari við ofneyslu áfengis og tóbaks, offitu og fleira. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið fól Líneyju og Svavari Knúti að leiða vitundarvakningu um þennan vanda árið 2024 og er þessi fræðslufundur hluti af því verkefni.

Í fyrirlestri sínum fara tvímenningarnir yfir helstu einkenni félagslegrar einangrunar, þau áhrif sem hún hefur á samfélög okkar og hvað við sem einstaklingar og nærsamfélag getum gert til að sporna við þessari þróun og jafnvel snúa henni við. Þau munu mögulega deila fróðleik sem hefur rekið á fjörur þeirra víða um land og jafnvel verður gítarinn með í för til að ljúka fundinum með smá upplyftingu.

Félagsleg einangrun snertir fólk í öllum aldurs- og samfélagshópum og er því brýnt að samfélagið allt taki höndum saman til að vinna á þessari nýju ógn. Því eru öll velkomin á fyrirlesturinn og þær umræður sem vonandi skapast í kjölfarið.

Viðburðurinn er opinn öllum og aðgangur ókeypis. Sveitarfélagið hvetur sérstaklega einstaklinga 60 ára og eldri, fjölskyldur þeirra, vini og aðstandendur til að mæta, hlusta og taka þátt í umræðunni.