Fara í efni

Fundur um stöðu fjarskipta

12.04.2021

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu fjarskipta þriðjudaginn 13. apríl kl. 10:00-11:30. Á fundinum verður fjallað um fjarskipti á svæðinu, helstu áskoranir og tækifæri til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum.
Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar um stöðu fjarskiptamála. Fundarstjóri er Jón Björn Hákonarson, formaður fjarskiptaráðs og bæjarstjóri í Fjarðabyggð.

Eftir kynningar og framsögur er fundargestum skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni. Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar.

Skráningarsíða https://bit.ly/3dSstUw
Vefsíða um grænbók um fjarskiptamál https://bit.ly/3mBToYp

Skráningu lýkur kl. 9:00 þriðjudaginn 13. apríl. Þeir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.

DAGSKRÁ:
1. Jón Björn Hákonarson, formaður fjarskiptaráðs, setur fund
2. Ottó V. Winther, verkefnisstjóri fjarskiptaáætlunar, fer stuttlega yfir ferli vinnu við gerð nýrrar fjarskiptaáætlunar og tengda þætti
3. Formaður fjarskiptaráðs fer yfir stöðu helstu aðgerða gildandi fjarskiptaáætlunar og áskoranir
4. Erindi:
- Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri, Húnaþingi vestra.
- Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélaginu Skagafirði
5. Þátttakendum skipt í umræðuhópa sem velja sér forsvarsmanneskju ræða og taka saman svör við lykilspurningum
6. Fólk í forsvari umræðuhópa skýra stuttlega frá niðurstöðum
7. Opnar umræður í lokin